157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:48]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir góða yfirferð. Ég get tekið undir að ég held að við höfum öll haft miklar væntingar til viðbótarfjármagns svo við gætum verið að keyra hlutina hratt áfram. Ég hef þær væntingar enn þá að ákveðnu leyti. Þó að fjármagnið sem við séum að sjá í samgönguáætlun sé minna þá bind ég vonir við að ríkisstjórnin muni búa þannig um hnútana að innviðafélagið geti stutt við að við náum einhverjum hraða af því að það þarf sannarlega. Það eru svo mörg stór verkefni eins og við sjáum bara í því að það eru litlar breytingar sem verða á áætluninni milli umræðna. Það sýnir okkur bara hversu mikil þörf er á að bregðast við ólíkum athugasemdum sem ólíkir aðilar, sem komu fyrir nefndina, hrópuðu á. Þörfin er mikil og ég vona innilega að það verði hægt að fá eitthvert viðbótarfjármagn því að það þarf sérstaklega.

En mig langar til að byrja á að spyrja hv. þingmann aðeins út í endurskoðun eða vinnu sem borgarstjóri, nýtekinn við, hefur boðað, hvernig sú vinna eða það ákall um að fara í ákveðna endurskoðun sem snýr m.a. að borgarlínu og samgöngusáttmálanum, rímar við þær áherslur sem koma fram í samgönguáætlun og þá sýn sem hv. þingmaður hefur á þarfir þess svæðis þar sem hv. þingmaður er búsett eða þjónandi, sem þarf, eins og hv. þingmaður segir, að reiða sig mjög mikið á almenningssamgöngur sennilega inn í framtíðina.