157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:50]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir andsvarið og kannski sérstaklega tækifærið, því að það er eiginlega ótrúlegt að mér tókst að halda 20 mínútna ræðu og ég nefndi Sundabraut ekki einu nafni. Ég er því mjög glöð að hv. þingmaður fór í andsvar því að þegar verið er að tala um hraðari innviðauppbyggingu erum við þar með eitt dæmi og ég hef flutt þingmál um það alloft að setja það bara í einkaframkvæmd, að fá bara aðila til þess og ég er nokkuð viss um að lífeyrissjóðir og aðrir aðilar væru til í að fara í það að fjármagna Sundabraut gegn því að geta tekið gjald. Ég held að það væri skýrasta leiðin. Ég er sammála hv. þingmanni, ég vona að við getum fundið einhverjar leiðir með innviðafélagið en ég velti því fyrir mér hvort við ættum bara að hleypa þessari framkvæmd af stað alveg sér utan um það.

Hv. þingmaður spyr hér út í samgöngusáttmálann og þær beiðnir sem hafa verið uppi um endurskoðun. Ég heyrði þetta í flestum sveitarfélögum núna á höfuðborgarsvæðinu og ég heyrði þetta líka í Hafnarfirði því að þar er algerlega óviðunandi ástand. Þegar þú ekur Reykjanesbrautina, og fólk sem er að koma úr Setberginu eða bara að keyra innan bæjar í sínu sveitarfélagi, þá kemstu ekki út á stofnvegina, kemst ekki yfir hringtorgin, vegna þess að umferðin er svo mikil frá Reykjanesinu og fer í gegnum bæinn. Það er auðvitað nauðsynlegt að ráðast í framkvæmdir þar og á tímabili tafði ákveðin hugmyndavinna og hönnun það. En ég held að það liggi nú fyrir ágætistillögur hvað það varðar núna og þess vegna skil ég mjög vel þegar íbúar kalli eftir því.

Hér í Reykjavík veit ég að það var Suðurlandsvegurinn fyrst og fremst sem var að pirra fólk mjög mikið og ég skil það mjög vel. Þegar rætt er um samgöngusáttmálann og svokallaða borgarlínu þá er auðvitað undir hverju og einu sveitarfélagi fyrir sig hvernig það framkvæmir innan síns sveitarfélags. Ég get gagnrýnt ýmislegt hvernig Reykjavíkurborg hefur ákveðið að haga því en ég styð samt borgarlínuverkefnið sem slíkt. Þess vegna sagði ég í ræðu minni að þegar farið er í einhvers konar endurskoðun (Forseti hringir.) og horft til þessara þátta þá er algerlega nauðsynlegt að sjá til þess að framkvæmdin frestist ekki. Ég þarf kannski að koma aðeins inn á varðandi kostnaðarliðinn í næsta andsvari.