157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:52]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð og get tekið undir mikilvægi þess að þessi framkvæmd komist í raun og veru út úr hinni hefðbundnu samgönguáætlun ef við erum að tala um að við ætlum að eiga nægt framkvæmdafé í önnur verkefni sem eru kannski minna arðbær. Maður vonar auðvitað að ef það er verið að taka verkefni í framtíðinni, og það á eftir að fjármagna Sundabraut, inn í innviðafélagið þá skapist meira svigrúm til þess að við séum að fjárfesta t.d. í minna arðbærum verkefnum á landsbyggðinni.

En mig langar til að beina sjónum aðeins að fjárhagsþættinum sérstaklega. Manni reiknast til að þá þurfi kannski svona 30 milljarða á ári til viðbótar til að við getum raunverulega verið að vinna á þessari innviðaskuld. Telur hv. þingmaður, miðað við fyrri ár og fyrri vinnu sem hv. þingmaður hefur tekið þátt í, að við hefðum þurft að forgangsraða enn meiri fjármunum í samgönguáætlun per se, ekki síst í ljósi þess að það er ákveðin óvissa með innviðafélagið, sem við erum samt öll spennt fyrir að styðja við og hjálpa til við að verði að veruleika?