157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[14:54]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur andsvarið. Ég ætla kannski að byrja á að reyna að klára svarið mitt við fyrra andsvarinu þegar spurt var um endurskoðun á samgöngusáttmálanum og þá samtal nýs borgarstjóra og fjármálaráðherra og/eða bæjarstjóra hér á höfuðborgarsvæðinu. Ekki það að ég þekki neitt til þeirra umræðna og ég óska þeim alls hins besta í því öllu saman, en ég veit að ábendingin hér í Reykjavík var ekki síst af því að það var ákveðin vantrú á því að ríkið myndi skila þessu fjármagni inn í framkvæmdina, inn í samgöngusáttmálann sem þó er búið að skrifa undir, það snerist um það, vegna þess að í því vilyrði voru taldar upp nokkrar leiðir til að fjármagna það. Það var m.a. einhver innkoma út af Keldnalandinu. Það var talað um einhvers konar flýtigjöld. Ég fór yfir það hér áðan að ég héldi að það væri komin alger vantrú á þá hugmyndafræði, þá lausn, vegna þess að það er nú þegar farið að rukka hér kílómetragjöld og alls konar aðrar umræður eru í gangi. Þess vegna nefndi ég nú dæmi um það að við gætum t.d. selt Landsbankann. Það er hugmynd til að fjármagna innviðauppbyggingu.

Hv. þingmaður spyr hvort það hefði þurft að forgangsraða enn frekar til samgangna í fjármálaáætlun. Ég get verið sammála því. Ég held að það liggi alveg ljóst fyrir að við hefðum þurft meira fé inn í samgöngumálin. Ég hefði treyst mér til að gera það með þeim hætti og ég held að ef Sjálfstæðisflokkurinn væri hér í ríkisstjórn þá hefðum við forgangsraðað með öðrum hætti þannig að meira fjármagn hefði farið í það. En að því sögðu þá benti ég líka á reynslu síðustu ára þar sem við þurftum að setja um 500 milljarða í að bregðast við einhverju neyðarástandi og auðvitað voru það peningar sem fólk vildi frekar setja í eitthvað annað. Því miður eru ýmis teikn á lofti sem gætu orðið þess valdandi að við munum sigla inn í einhvers konar krísu. Nefni ég þá stöðu ferðaþjónustunnar og stöðu Icelandair í því samhengi, bara þekkjandi það að við fengum hér flugfélag sem fór á höfuðið og það breytti ýmsu varðandi fjármálaáætlun (Forseti hringir.) og fjármálastefnu ríkisstjórnarinnar. Þannig að því miður er það þannig að við þurfum líka alltaf að vera viðbúin einhverjum krísum og þá gengur forgangsröðunin ekki alveg upp. En já, við hefðum mátt forgangsraða enn frekar til samgöngumála.

(Forseti (IngÞ): Forseti vill beina því til hv. þingmanna að láta það vera að láta öðrum þingmönnum bregða en viðbrögð þess sem bregður geta truflað þingmann í ræðustól.)