samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Það er gott að létta undir með þingmönnum sem sitja hér í sal og sökkva sér ofan í samgönguáætlun. En ég vil byrja á því að þakka hv. 1. þm. Suðvest. fyrir góða yfirferð. Það er sömuleiðis mjög mikilvægt í þessu samhengi þegar við ræðum um samgöngumál, samgönguáætlun, að við horfum til þess, ég held að það sé óhætt að segja það fyrir okkur sem búum úti á landi, að í hvert skipti sem við komum til Reykjavíkur þá furðum við okkur á því hvernig fólk getur yfir höfuð búið hér á þessu svæði, þegar maður kemur út í umferðina. Ég held að það sé mjög mikilvægt sömuleiðis og ég tek undir með hv. þingmanni þegar kemur að samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og mikilvægi hans. Í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar er komið ágætlega inn á þetta þar sem eru tilteknar fjárhæðir sem eiga að fara í verkefnið. Af því að hv. þingmaður talaði um framtíðaruppbyggingu á ákveðnum svæðum hér á höfuðborgarsvæðinu, eins og með Blikastaði og náttúrlega Keldnalandið sömuleiðis — þegar maður les nefndarálit meiri hlutans þá virðist eiga að leysa það fyrst og fremst í tengslum við borgarlínuna, væntanlega þá með almenningssamgöngum sem eiga að bera þungann af því að flytja fólk á milli A og B, ef ég skil þetta rétt. Mig langar að fá aðeins álit hv. þingmanns, því að ég veit að hv. þingmaður býr í Mosfellsbæ og kvartar stundum sáran yfir því þegar við erum að mæta á nefndarfundi klukkan níu að umferðin sé þung frá Mosfellsbæ og hingað niður í miðbæinn, hvernig við eigum að leysa þennan umferðarþunga. Er þetta lausnin, þ.e. almenningssamgöngur, varðandi þá miklu uppbyggingu sem fram undan er í Blikastaðalandi og Keldnalandi?