samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er auðvitað lykilspurning því að eins og staðan er í dag, með þeim íbúafjölda sem við erum með í dag á höfuðborgarsvæðinu, eru tafirnar miklar. Ég ætla líka að fá að segja það að ég hef samt fulla samúð með til að mynda Vestmannaeyingum sem segja: Heyrðu, bíddu, þetta er ekki bara holóttur vegur eða stappa í Ártúnsbrekkunni, við bara komumst ekki milli lands og Eyja, þannig að ég hef alveg fullan skilning á því. En ef við erum að tala um samgöngur hérna á höfuðborgarsvæðinu þá eru tafir orðnar ansi miklar. Þær verða auðvitað bara meiri og meiri eftir því sem okkur fjölgar þannig að við verðum að vera með einhverjar lausnir og það var það sem ég var að reyna að segja hérna áðan. Ég hef ekki þá trú að borgarlínan ein og sér muni bjarga samgöngum á höfuðborgarsvæðinu, ekki ein og sér. En ég hef líka þá trú að það sé ekki hægt að ráðast í frekari uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu öðruvísi en að vera með öflugar og góðar almenningssamgöngur. Þannig að ég er að segja að borgarlína er mikilvægt púsl inn í þessa mynd og það er ekki hægt að horfa fram hjá því. Það mun samt aldrei verða svo að allir íbúar í Blikastaðalandinu eða Keldnalandinu muni taka borgarlínuna eða nota almenningssamgöngur, það verður auðvitað ekki svoleiðis. En það að vera með öflugar almenningssamgöngur og aðra samgöngumáta eykur í mínum huga bara frelsi í samgöngum þannig að fólk getur ráðið því, valið sjálft hvort það notar almenningssamgöngur eða einkabílinn. Þess vegna var samgöngusáttmálinn svo mikilvægur, vegna þess að hann var að taka öllum þessum þáttum: hann var að taka á almenningssamgöngum, hann var að taka á stofnframkvæmdunum, sem eru líka mikilvægar — okkur vantar sums staðar mislæg gatnamót og okkur vantar stundum að gera tvíbreiða vegi einhvers staðar og ég tala nú ekki um stokka eða göng hérna á höfuðborgarsvæðinu — en þar er líka verið að tala um virka ferðamáta eins og hjólreiðar og það sé hægt að komast þannig á milli staða, sem og umferðarstýringuna. Það var, held ég, þessi heildarmynd sem skiptir svo miklu máli, að það verður að horfa til allra þessara þátta (Forseti hringir.) og það þarf að horfa á svæðið í heild sinni. Þá skiptir líka miklu máli að við séum að byggja upp atvinnutækifæri sem víðast á svæðinu en einskorðum þau ekki bara við vestasta odda höfuðborgarsvæðisins og að fólk eigi svo að búa á hinum (Forseti hringir.) svæðunum, því að það gengur auðvitað ekki heldur upp.