157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:02]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla bara að halda mig við höfuðborgarsvæðið og velta þá frekar upp þessum möguleikum því að eins og kom fram í svari hv. þingmanns þá kemur borgarlínan ekki til með að flytja alla t.d. úr Blikastaðalandinu og frá Keldnalandinu o.s.frv. Ég get ekki séð hér í nefndaráliti eða í þeirri samgönguáætlun sem við erum að ræða að við séum að tala um ákveðnar stofnbrautir sem eigi þá að taka þungann því að nóg er nú fyrir, ég held að við getum öll verið sammála um það, á þessum annatímum þegar flestir eru að sækja vinnu. Það vill bara þannig til að straumurinn er í aðra áttina á morgnana og hina áttina á daginn. Það er eiginlega ekkert þar á milli. Sér hv. þingmaður einhverja lausn á því í tengslum við uppbyggingu Blikastaðalandsins og eins Keldnastaðalandsins hvernig eigi að leysa þennan flutning sem verður óhjákvæmilega á fólki til og frá vinnu og til að sækja þjónustu o.s.frv.? Hvernig leysum við það? Því að ef borgarlína nær ekki að sinna því, ég tek alveg undir með hv. þingmanni að almenningssamgöngur muni ekki leysa allan vandann, þá þurfum við að breyta hegðunarmynstri Íslendinga og ég held að það sé brekka sem flest okkar vilji ekki fara í. Þannig að hvernig leysum við þennan þátt? Þurfum við fleiri stofnvegi eða að biðja fólk um að vera heima hjá sér á vissum tímum? Það er náttúrlega hluti af þessu sem við stöndum frammi fyrir, hvernig við eigum að leysa hlutina til framtíðar, því það er alveg ljóst í mínum huga að fólki mun halda áfram að fjölga á höfuðborgarsvæðinu, þó svo að ég hvetji alla til að flytja út á land.