157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[15:04]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur andsvarið. Já, það þarf ákveðnar stofnvegaframkvæmdir. Þess vegna var það svo mikilvægt í samgöngusáttmálanum að þær væru einnig tilgreindar og væru jafn stór þáttur og borgarlínuþátturinn. Ég sé nú að hér er ágætiskynning sem Betri samgöngur sendu inn í umhverfis- og samgöngunefnd og þar er aðeins verið að fara yfir stofnvegina og fjárfestingaráætlunina. Það sem helst er kallað á eru þessir stokkar eða göng og svo er það Hafnarfjörður, eins og ég nefndi í ræðunni minni áðan. Vesturlandsvegurinn er búinn að fara í ákveðna breikkun. En það sem skiptir líka mjög miklu máli fyrir þetta svæði er Sundabrautin vegna þess að það er auðvitað mjög mikið af umferð að koma vestan frá og þess vegna mun Sundabrautin líka skipta miklu máli, því að jafnvel þó að þú myndir breikka Vesturlandsveginn eitthvað enn frekar, sem ég held að sé ekki þörf á akkúrat núna, er stíflan alltaf Ártúnsbrekkan. Þar er landfræðilega bara ekkert hægt að breikka neitt meira en er nú þegar. Þess vegna er svo mikilvægt að Sundabrautin komi og mér finnst það mjög mikið fagnaðarefni að hún sé raunverulega að birtast okkur. Þetta er ekki bara einhver draumsýn eins og hefur verið í 40–50 ár, hún er raunverulega að koma til. Hún þarf að vera þannig að hún létti verulega á Ártúnsbrekkunni, ég held að það sé algjört lykilatriði að hún verði gerð með þeim hætti. En eins og ég segi, ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni, ég ætla ekki að tala fyrir því að allir eigi hér að fara í strætó, ég ætla ekkert að tala fyrir því, en ég tala fyrir frelsi í samgöngum. Það getur stundum verið mjög hentugt að geta hoppað upp í almenningssamgöngur sem þú getur treyst þar sem eru tíðar samgöngur og þú ferð auðveldlega á milli staða. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa öflugar almenningssamgöngur, svo fólkið hafi raunverulegt frelsi um það hvernig það fer á milli staða. Þetta snýst ekki um að skikka einhvern í eitt eða neitt form. Þess vegna held ég að það sé mjög mikilvægt að — ég held að það hafi verið varðandi Keldnalandið (Forseti hringir.) þar sem komu einhverjar skipulagstillögur um að það ættu ekki að vera nein bílastæði heldur bara bílastæðahús á einhverjum stöðum. Ég hygg að nýr meiri hluti verði fljótur að snúa því við því að ég sé ekki fyrir mér slík hverfi rísa, hvað þá svona úti í jaðri höfuðborgarsvæðisins.