samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir hennar fyrra svar. Það er ánægjulegt að heyra það að ég og hv. þingmaður erum sammála um vonbrigðin gagnvart jarðgangaáætluninni eða forgangsröðun jarðganga. Ekki það að það sé verið að tala á móti Fljótagöngum. Fljótagöng, eins og öll önnur jarðgöng á Íslandi, eru mikilvæg. Þau eru mikilvæg fyrir samfélagið þar sem þau koma. Þau eru þjóðhagslega mikilvæg, þau stytta vegalengdir, þau styrkja samfélög, þau styrkja atvinnulíf og byggðafestu hvar sem þau koma. Héðinsfjarðargöng eru gott dæmi um það og fleiri göng, Vestfjarðagöngin, svo fleiri göng séu nefnd. Það sem vekur furðu er að það er búið að eyða tæpum milljarði í rannsóknir á göngum, það er búið að vekja upp allar þessar vonir. Við erum núna að ræða framkvæmdaáætlun. Það er alveg ljóst að hæstv. ríkisstjórn ætlar að byrja á Fljótagöngum, en þá veltir maður fyrir sér miðað við fyrri áætlanir og miðað við fyrri forgangsröðun, sem er meira að segja búið að breyta núna, og uppröðun, það er ekki einu sinni bara verið að breyta hérna fyrsta kostinum, það er verið að breyta öllu: Hefur það eitthvað upp á sig þegar upp er staðið að vera að búa til 15 ára áætlun af því að svo kemur næsta ríkisstjórn, og guð má vita hvenær hún kemur, kannski kemur hún fyrr en seinna og hún kemur með sína áætlun og sína pólitísku stefnu? Það eru því í raun bara næstu ár sem skipta máli en ekki næstu 5–15 ár, síðustu tíu árin segja í rauninni rosalega lítið þegar upp er staðið. Mig langar að fá hugleiðingar hv. þingmanns, hvort hann sé sammála mér um að það sem hæstv. ríkisstjórn sé að gera núna undirstriki það.