157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:29]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir. Ég vildi alls ekki missa af því að eiga orðastað við hv. þm. Jens Garðar Helgason en þurfti nú ekki að koma á undan hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni. En ég þakka forseta fyrir að hleypa mér hérna að.

Það sem mig langaði til að spyrja hv. þingmann út í er það sem ég ræddi aðeins í ræðu minni og hann kom inn á, þ.e. að samgönguáætlun er augljóslega ekki fjármögnuð. Ég fór yfir það í nokkrum liðum og núna sýnist mér vera búinn að bætast við enn einn liðurinn. Við getum eiginlega ekki rætt samgönguáætlun án þess að ræða innviðafélagið, þannig að fyrst innviðafélagið á að vera svona ofboðslega sjálfstætt og það ræður algjörlega hvaða verkefni það fer í, hvernig geta þá stjórnvöld haldið því fram að þessi samgönguáætlun sé fjármögnuð? Það er eitt að hún er ekki fjármögnuð fjárhagslega, peningalega, en líka hitt að það getur bara vel verið að innviðafélagið segi bara: Nei, takk. Ég vil ekki fara í þetta og ekki í þetta og ekki þetta. Áttar hv. þingmaður sig á því hvað gerist þá eða áttar hann sig á því hvaða verkefni eru raunverulega að fara í gang? Því að það er ekki nokkur leið að átta sig á því ef innviðafélagið á að vera svona sjálfstætt að við vitum ekki hvaða verkefni það á að fara í, við vitum ekki hvaða verkefni ríkisstjórnin ætlar að fjármagna.

Að lokum langar mig að spyrja: Segjum að hér eftir kosningar gerist það að Miðflokkurinn verði í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og báðir þessir flokkar hafa lofað að Sundabraut verði í forgangi, þá liggur þetta þannig núna að innviðafélagið á samt að ráða því. Gengur það upp að mati hæstv. ráðherra að kjörnir fulltrúar geti ekki lengur staðið við kosningaloforð sín eða myndum við þá alltaf bara vinna með það að setja það í sérfélag og vera einhvern veginn að fara fram hjá innviðafélaginu? Er það ekki orðið eitthvað skrýtið?