samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni kærlega fyrir hans fyrri spurningu hér. Í umræðum í gær var einmitt komið inn á ferjuáætlunina og ég hef margítrekað það, það er bara gott og vel: Gerum ferjuáætlun. En það má ekki taka mörg ár að gera ferjuáætlun. Ég held að það sé ekki mjög flókið mál. Ferjuáætlun ræðst fyrst og fremst af því: Eru einhverjir fjármunir eða verða einhverjir fjármunir settir í ferjuáætlun? Ég ætla bara að taka dæmi um Grímseyjarferjuna Sæfara af því að hún er bara gott dæmi. Hún er sett 2031. Þá verður ferjan 35 ára. Sæfari er ekki hilluvara. Það þarf að byggja Sæfara, það þarf að hanna hann og byggja hann, sem þýðir að á næsta ári þyrfti hönnun að byrja og útboðin og allt þetta. Við vitum að þetta tekur allt tíma þar til nýr Sæfari siglir hér inn Eyjafjörðinn 2031. Það er enginn peningur áætlaður í nýjan Sæfara. Enginn. Þetta er bara ártal á blaði. Nýr Baldur á ekki að koma fyrr en 2036 og þá verður Baldur gamli orðinn 45 ára. Það er ekki búið að ráðstafa neinum peningum eða gera ráð fyrir neinum peningum í nýjan Baldur, hvað þá að nýi Baldur eigi í rauninni að vera systurskip Herjólfs til að geta tekið við af Herjólfi ef Herjólfur bilar, eins og hæstv. ráðherra hefur sagt. Áætlanir eru góðar sem slíkar og það er gott að hafa einhvers konar áætlun fyrir framan sig. En áætlunum þurfa líka að fylgja aðgerðir og skuldbinding um fjármuni. Það er ekki fyrir hendi núna. Þessi ártöl sem eru á blaðinu eru óskaártöl Vegagerðarinnar en ríkisstjórnin hefur ekki skuldbundið sig til að setja eina einustu krónu í þetta enn þá.