157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:12]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir hans mjög svo góðu ræðu og auðvitað einkenndist hún af áherslum í Suðurkjördæmi og ekki síst ferjusiglingum og samgöngum til Vestmannaeyja. Það er alveg rétt, eins og við ræddum hér áðan, að auðvitað er vandamálið að ekki er verið að setja neina peninga í ferjur á Íslandi. Það er hið augljósa vandamál varðandi ferjumál. Það er hægt að skipa ýmsa starfshópa og skrifa skýrslur og gera áætlanir og það er allt gott og vel ef það koma peningar á eftir til að fylgja eftir áætluninni. Annars endar sú áætlun, eins og margar aðrar skýrslur sem gerðar eru fyrir hið opinbera, í skúffu og safnar ryki og ekkert verður úr.

Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um nokkuð sem ég hef velt vöngum yfir hér við aðra þingmenn sem hafa komið hér oft upp. Það er í rauninni það ef við horfum á heildarútgjöld til samgöngumála. Hér er blásið í herlúðra og talað um að ræsa vélarnar, rjúfa kyrrstöðuna og ég veit ekki hvað og hvað. En það er í rauninni þannig að á þessu framkvæmdatímabili, sem er í rauninni eina tímabilið sem við getum almennilega tekið mark á þar sem er verið að setja niður peninga í framkvæmdir, þá eru þetta ekki nema rúmlega 72 milljarðar á ári sem er verið að setja í samgöngur á Íslandi. Inni í því eru sjóvarnir og alls kyns meira heldur en bara vegir og göng. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann ekki að það væri hægt að forgangsraða betur í rekstri ríkisins og hagræða betur í rekstri ríkisins til að það væri hægt að setja meira í innviðauppbyggingu á Íslandi?