samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir ræðuna. Mig langaði til að spyrja hana aðeins út í það sem hún ræddi varðandi göng til Vestmannaeyja, hvort hv. þingmaður átti sig á því ef um er að ræða einkaframkvæmd, svipað og bara Hvalfjarðargöngin, þetta væri framkvæmd þar sem einkaaðilar myndu byggja upp og reka og svo fengi ríkið þetta til baka — ég taldi að það yrði ekkert vandamál með slíkt en ég átti orðastað við hv. þm. Jens Garðar Helgason fyrr í dag og hann vildi meina að með tilkomu þessa nýja innviðafélags væri búið að loka fyrir slíkt. Þekkir hv. þingmaður hvort það sé búið að loka fyrir slíkt, hvort þetta verði að fara inn í innviðafélagið ef af þessu verður eða hvort það sé einhver misskilningur.