157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:19]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur kærlega fyrir hennar erindi. Hún fór nokkuð víða en ég dvaldi sérstaklega við eitt af því sem hún fjallaði um sem var ferjuáætlun. Nú er ég ekki sérfróður frekar en sennilega flestir aðrir í þessum sal um ferjuáætlanir og hvað þarf til. En eitt veit ég þó, frú forseti, og það er að ferjur eru ekki hilluvara og ferjurnar okkar margar hverjar, svo hóflega sé tekið til orða, eru orðnar fjörgamlar. Til að þær áætlanir standist sem hér er kallað eftir er það minn skilningur, frú forseti, að hönnun og smíði þyrftu að fara af stað í raun og veru bara á þessu ári til að þetta sé raunhæf áætlun. Mig langaði því að spyrja hv. þingmann hvert hennar mat sé á því hvaða tímaramma við erum að vinna með.