samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir gott svar og mér heyrist við bara vera á svipuðum nótum. Í mínu seinna andsvari langar mig að ræða aðeins við þingmanninn um innviðafélagið óstofnaða. Málið er núna í nefnd og kemur fyrir þingið á næstu dögum. Ég hef velt því fyrir mér að hæstv. innviðaráðherra hefur verið svolítið yfirlýsingaglaður varðandi innviðafélagið og mér virðist sem hann telji að það sé hægt að setja það sem honum sýnist inn í það félag. En nú virðist raunveruleikinn vera að segja okkur annað. Innviðafélagið mun væntanlega ákveða sjálft á markaðsforsendum hvaða verkefni það tekur yfir, þá væntanlega úr samgönguáætlun. Er þingmaðurinn sammála mínu mati um að ráðherrann hafi mögulega verið of yfirlýsingaglaður vegna þess að það er ekkert í hendi hvað getur farið inn í þetta félag? Það er enginn sem veit það.