samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Ég held, ef við horfum yfir sviðið, að það hefði verið heppilegra að frumvarp um innviðafélag hefði komið fram á síðasta þingi þannig að við hefðum vissu fyrir því hvernig fyrirkomulagið yrði vegna þess að árangur samgönguáætlunar hangir svo mikið á innviðafélaginu. Það hefði verið skynsamlegri ráðstöfun. Þá hefði verið hægt að sjá fyrir margar af þeim vangaveltum og krefjandi spurningum sem við erum að takast á við í dag. Ein af þeim er vissulega hvaða verkefni er hægt að færa yfir í félagið og kannski ekki síst hvernig pólitík og stjórnmál geta borið ábyrgð á tímasettum áætlunum þegar um innviðafélag er að ræða.
Ég get sagt að við áttum fund með starfsmanni sem er að hanna þetta, reynslumiklum aðila, sem talaði um sérstök dótturfélög (Forseti hringir.) sem fengju þá meðgjöf í einstök verkefni eins og ef það væri um að ræða jarðgöng. (Forseti hringir.) En slík verkefni þurfa alltaf meðgjöf og það þarf alltaf að fjármagna þau og gera ráð fyrir þeim í fjármálaáætlun.