157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:02]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef sjálfur átt í samtölum t.d. við Vegagerðina og þar skilst mér að við séum tæknilega séð klár og getum hafist handa árið 2027 við að bora Fljótagöng. Það er vegna náttúruvárinnar sem þarna er svo sannarlega til staðar sem fjármagni hefur verið ráðstafað á seinustu árum til að rannsaka þennan kost og svo náttúrlega veltur fjármögnun að einhverju leyti á innviðafélaginu. En ég er bara bjartsýnn á að það verði hægt að hefjast handa við Fljótagöng 2027. Ég tek undir, eins og ég segi, að það voru auðvitað vonbrigði að Fjarðarheiðargöng skyldu fara alveg út af framkvæmdaáætlun en ég skil mjög vel að Fljótagöngin séu sett efst í ljósi þess að vegurinn þar er bara á leiðinni niður í sjó. Ég þekki fólk á Siglufirði sem annaðhvort bannar börnunum sínum að keyra þennan veg eða keyrir hann ekki sjálft. Þetta hefur líka áhrif á atvinnulíf á svæðinu, (Forseti hringir.) t.d. hefur landaður afli dregist saman á Siglufirði vegna þess að það er ekki auðvelt að keyra með aflann í burtu.