samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu. Það er vissulega eftirsjá að hv. þingmanni hér sem er gjörkunnugur samgöngumálum eftir langa veru í samgöngunefnd og fleiri nefndum á vegum þingsins. Ég lýsi því yfir mikilli eftirsjá að hann sé að hverfa hér á brott, enda hefur hann barist fyrir sínu kjördæmi af miklu alefli alveg frá upphafi eftir því sem ég hef fylgst með.
Ég tek undir áhyggjur hv. þingmanns af því að úrbætur í hafnarframkvæmdum í Njarðvíkurhöfn skyldu ekki vera í áætluninni og spyr um áætlanir þessar um færslu flota Landhelgisgæslunnar að einhverju leyti til Reykjanesbæjar, hvort það sé ekki enn þá baráttumál hans á nýjum vettvangi sem bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sem ég óska honum einnig innilega til hamingju með, og einnig tvöföldun Reykjanesbrautar. Hún virðist ekki vera á áætlun fyrr en á næsta kjörtímabili.