samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir kveðjuna og þetta góða andsvar. Það er algerlega ljóst að þessi ríkisstjórn er að hunsa fjórða stærsta sveitarfélag landsins og Suðurnesin öll með því að setja Reykjanesbrautina enn aftar og með því að taka hafnarkantinn í Njarðvíkurhöfn út, sem var þverpólitísk sátt um í sveitarstjórn Reykjanesbæjar á sínum tíma. Það voru meira að segja flokkar sem eru í núverandi ríkisstjórn sem stóðu að því en þau taka þetta bara út og þurrka í burtu. Ég mun að sjálfsögðu berjast áfram fyrir þessum mikilvægu þáttum, ekki bara af því að ég vilji fá Landhelgisgæsluna til Reykjanesbæjar, heldur líka út af því að þetta er þjóðhagslega hagkvæmt. Þetta er betri rekstrargrundvöllur fyrir Landhelgisgæsluna, þetta sparar fjármuni og eykur öryggi sjófarenda. Þetta er skynsamlegt og Landhelgisgæslan er með mikla starfsemi á svæðinu. Þetta hjálpar á svo margan annan hátt, þannig að þetta er skynsamleg framkvæmd sem þarf að fara í.