157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:48]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Ása Berglind Hjálmarsdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna og fyrir samstarfið og óska honum velfarnaðar í nýju mikilvægu starfi. En ég mátti til með að koma hingað upp og fara aðeins yfir það sem hv. þingmaður var að halda fram hér þegar hann var að tala um innviðafélagið þar sem hv. þingmaður var að lýsa því að það ætti að setja Reykjanesbrautina bara strax í einhvers konar gjaldtöku og annað slíkt. Þetta hljómaði í raun eins og hv. þingmaður væri að lýsa sinni eigin þingsályktunartillögu um samgöngufélagið Þjóðbraut þar sem stendur, með leyfi forseta:

„Gjaldtaka hefjist við valin samgöngumannvirki í eigu ríkisins svo fljótt sem verða má með það að markmiði að byggja strax upp sjálfbæran tekjustraum félagsins.“

Til viðbótar stendur hér:

„Ef vel tekst til mætti jafnvel lækka aðra skattheimtu eða a.m.k. forðast sérstakar skattahækkanir.“

Þessi framsetning stenst því ekki alveg skoðun. Með innviðafélagið hins vegar er verið að tala um að hefja gjaldtöku í samhengi við nýjar framkvæmdir og hluti af markaðsprófinu er sá að þar verði hægt að fara aðra leið fram hjá svo ég óska þess að hér sé staðreyndum haldið rétt til haga.