samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki betur en að það hafi alltaf staðið til að taka veggjöld af Ölfusárbrú en hún verður einmitt leyst inn í innviðafélagið sem eign ásamt veginum að Höfn í Hornafirði, Vaðlaheiðargöngum og fleira þannig að það liggur fyrir, en Reykjanesbraut er ekki talin þar í því samhengi svo ég viti til alla vega. Annað sem ég veit að hv. þingmaður er áhugasamur um er aðkoma þingsins að annars vegar samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og svo innviðafélaginu. Ég hef átt þessar samræður við hv. þingmann og þess vegna gleður mig að benda á að hér í nefndarálitinu eru komin kort, lýsingar og tímasetningar á framkvæmdum sem tilheyra Betri samgöngum þannig að ég þakka fyrir gott innlegg í þeim málum. Varðandi innviðafélagið er hér breytingartillaga frá nefndinni þar sem kemur fram, með leyfi forseta:
„Áður en samningar eru gerðir við félagið um samgönguverkefni“ — sem innviðaráðherra skal gera — „skal ráðherra kynna umhverfis- og samgöngunefnd og fjárlaganefnd helstu forsendur verkefnis, þar á meðal kostnaðar- og ábatamat, fjármögnun, fyrirkomulag gjaldtöku og mat á samfélagslegum áhrifum.“
Það sem nefndin er því að gera núna er að stjörnumerkja til skoðunar fyrir innviðafélagið. (Forseti hringir.) Á meðan eru allar þessar framkvæmdir fjármagnaðar inn í samgönguáætlun þar til innviðafélagið lýsir áhuga sínum og fer þá í þetta ferli.