157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:52]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil byrja þar sem hún endaði. Nákvæmlega fyrirkomulagið sem hún lýsti í lokin er ágætisfyrirkomulag en það á líka við um Betri samgöngur og framkvæmdarvaldið hefur aldrei farið eftir því, aldrei. Það hefur því ekki virkað, sama hvað við höfum kallað eftir því og reynt að fylgja því eftir hér, svo það sé sagt.

Ég bið hv. þingmann, sem er þingmaður Suðurkjördæmis og situr í umhverfis- og samgöngunefnd, að lesa allt frumvarpið um innviðafélagið og allar heimildirnar áður en hún fer að samþykkja það af því að það stendur neðar í textanum sem hún vitnaði í, um Ölfusárbrú og Hornafjarðarfljót og annað slíkt, að það megi líka setja þegar byggða vegi eins og Reykjanesbraut inn í. Hv. þingmaður verður að lesa alla leið. Þetta stendur bæði í greinargerðinni og í heimildinni með innviðafélaginu og í greinargerð með fjármálaáætlun. Þetta er alvarlegur hlutur og þingmaðurinn verður að vita þetta áður en hún samþykkir þetta og sendir skattheimtu á helminginn af sínu kjördæmi.