157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[19:54]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég ætla að nota tækifærið, því hv. þingmaður er hokinn af reynslu hér í þingstörfunum og einkum og sér í lagi í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, reynslu sem senn er á enda, til að spyrja hann örlítið út í eitt sem hann nefndi í sinni ræðu, sem er samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins. Hv. þingmaður og ég lítum kannski á þessa samgönguáætlun frá mismunandi sjónarhorni. Hann er þingmaður fyrir Suðurkjördæmi og ég fyrir Reykjavík. En af því hann nefndi samgöngusáttmálann og mér finnst við Reykvíkingar bera skarðan hlut frá borði í þessari samgönguáætlun svona almennt, en ég kem að því í minni ræðu síðar, en hér er minnst á að það verði unnið að áframhaldandi uppbyggingu hágæðaalmenningssamgangna, Borgarlínu og annarra samgöngumannvirkja á grundvelli samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, þá langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann kannist við það að þessi samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, sem vel að merkja hefur tekið einhverjum breytingum, endurskoðun að mér skilst a.m.k. einu sinni ef ekki oftar, hafi komið til umfjöllunar sérstaklega í hv. umhverfis- og samgöngunefnd í tíð hv. þingmanns.