samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Þegar uppfærsla samgöngusáttmálans var kynnt og skrifað undir hana þá óskaði hv. umhverfis- og samgöngunefnd eftir kynningu á uppfærslunni upp á þessa 300 milljarða. Það kom m.a. fram í þeirri kynningu að það væri ekki þjóðhagslegur ábati reiknaður að fara í bráðabirgðaaðgerðir eða flýtiaðgerðir eins og að setja mislæg gatnamót á Bústaðaveg þangað til það væri komið að heildarframkvæmdinni og annað slíkt. Það var ekki gert. Það er eina umfjöllunin. Hún hefur aldrei fengið efnislega umfjöllun í gegnum samgönguáætlun eða framkvæmdatöflurnar. Ég svaraði því ekki áðan í andsvörum við hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur að þó að það séu komin einhver kort inn í eitthvert nefndarálit þá hefur það ekkert að segja. Þetta þarf að vera í framkvæmdatöflunum sjálfum. Þar höfum við dómafordæmi þegar friðlýsingar fyrrum umhverfisráðherra voru lýstar ólögmætar í Hæstarétti af því að þær voru ekki inni í þingsályktunartillögu um rammaáætlun sjálfri þannig að það sama á við hér. Þetta eru tvær lögformlegar áætlanir.