samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þetta svar. Eins og mig grunaði og eins og við svo sem vitum hefur samgöngusáttmálinn í sjálfu sér ekki verið blessaður á þinginu þó að þetta hafi komið hingað til umfjöllunar. Ég hef í sjálfu sér ekki annað andsvar til hv. þingmanns. Ég vil bara nota tækifærið og þakka honum fyrir samstarfið. Það er orðinn plagsiður hér í þinginu að menn grenji úr sér glyrnurnar þegar einhver lýsir því yfir að hann sé að hætta á þingi. Hér sé ég ekki tár á hvarmi, ekkert einasta tár á hvarmi, sem er gott fyrir hv. þingmann vegna þess að a.m.k. af mér og ég held af öllum hér inni er hann kvaddur með árnaðaróskum og óskum um heillaríkt starf í vandasömu verkefni sem sveitarstjóri í Reykjanesbæ og ég vænti þess að við eigum gott samstarf á þinginu við þennan sveitarstjóra eins og aðra þegar kemur að samgöngumálum og innviðauppbyggingu í landinu.