samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Andersen fyrir þessa góðu kveðju og sömuleiðis fyrir gott og ánægjulegt samstarf sem og öllum þeim sem ég hef starfað með hér, sérstaklega starfsfólki Alþingis sem hefur alltaf verið framúrskarandi og boðið og búið til að hjálpa. Maður er búinn að kynnast mörgum hér og ég hef lært mikið af þeim og fengið mikla reynslu og þekkingu sem ég mun búa að og allir munu geta leitað til mín áfram, hvort sem það er hér á þinginu eða annars staðar. Þetta mun fylgja mér í þau störf sem ég er kominn í núna í Reykjanesbæ og önnur störf. Ég vil líka þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér þetta tækifæri til að kveðja hér, í bili a.m.k., maður veit aldrei hvort maður kemur aftur eða ekki. Það verður tíminn að leiða í ljós.