157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:05]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir ræðuna. Hann einblíndi á landsbyggðina að mestu og það er vel. Ég kom sjálf inn á það í ræðu minni fyrr í dag, verandi þingmaður landsbyggðarinnar líka, að við búum við handónýta vegi, holótta, ekki bundið slitlag, fjöldann allan af einbreiðum brúm og ónóga vetrarþjónustu. Ég hugsa að ef höfuðborgarsvæðið þyrfti að búa við það sama og við þurfum að búa við úti á landi þá væri hreinlega allt tryllt hérna. Ég held að það sé ekki orðum aukið.

Spurning númer eitt er mjög einföld og ég veit svarið við henni. Ég er bara að gefa þingmanninum kost á að tjá sig um landsbyggðina. Ég er þeirrar skoðunar að þolinmæði íbúa á landsbyggðinni sé aðdáunarverð. Við búum ekki við sama þjónustustig og höfuðborgarsvæðið og mig langar að spyrja þingmanninn hvort hann sé ekki sammála mér í því. Í annan stað langar mig að koma inn á almenningssamgöngur vegna þess að það er mikið einblínt á almenningssamgöngur, aðallega hér á höfuðborgarsvæðinu. Þar er verið að gefa í en hins vegar er Vegagerðin að draga úr framlögum, það er niðurskurður til almenningssamgangna á landsbyggðinni. Ég er mjög óhress með þetta og mér finnst þetta slæmt. Hefur þingmaðurinn skoðun á þessu?