157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:07]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Ég vek athygli á því að það var ekki fyrr en 1994 sem leiðin milli Akureyrar og Reykjavíkur var öll komin með bundið slitlag, 1994. Það eru 32 ár síðan, þetta var í september 1994 og minnisvarðinn stendur við þar sem Sesseljubúð var upp á Öxnadalsheiði. Ég man eftir því sem drengur eða unglingur að þetta gat verið átta tíma akstur milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það voru tvö varadekk í bílnum og stundum sprungið á báðum eftir ferðina. 90% af leiðinni þarna á milli í kringum 1980 voru malarvegir. Þetta er nú það sem hefur gerst á þriðjungi úr öld. Ég er sammála því sem kemur fram hjá hv. þingmanni að jú, þolinmæði fólks á landsbyggðinni er meiri gagnvart samgöngumálum. Það er meiri þrautseigja gagnvart erfiðum aðstæðum sem eru mjög oft krefjandi og oft hættuleg skilyrði þannig að það er svolítið annað að vera hérna fyrir sunnan, í Vesturbænum í Reykjavík, eða á mörgum þeim svæðum sem maður þekkir í kjördæminu í daglegu lífi. Almenningssamgöngur. Í nefndaráliti meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar um borgarsamfélögin tvö hérna á höfuðborgarsvæðinu og á Hvítár-Hvítársvæðinu og síðan í kringum Akureyri og í Eyjafirði er svolítil áhersla á almenningssamgöngur og það er bara gott og mikilvægt. Ég vil samt benda á það að t.d. sá fjöldi farþega sem fer í strætó á milli Akureyrar og Reykjavíkur, ég veit ekki hvort hann sé einn tíundi, ef það nær því, af þeim sem fljúga. Þannig að hinar eiginlegu almenningssamgöngur, þegar lengra dregur út á landsbyggðina frá höfuðborgarsvæðinu, fara fram í gegnum flugið.