157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:10]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Meira af landsbyggðinni. Ég er búin að fara í svo mörg andsvör, þannig að ég man ekki hvort ég hafi spurt þingmanninn að þessu áður en mig langar að ræða farnetsmálin. — Get ég fengið smá athygli? Ég er að segja að ég man ekki hvort ég hafi spurt þingmanninn að þessu áður þannig að ég vona að mér fyrirgefist hafi ég gert það. Í minni fyrri ræðu kom ég inn á farnetsþjónustuna og útfösunina á 2G og 3G. Alla vega í mínu kjördæmi eru allt of margir staðir þar sem skilyrðin og tengingarnar eru verri við þessa útskiptingu, þ.e. 2G og 3G, og nú er búið að slökkva, skilst mér, á 2G og 3G og það var gert áður en 4G og 5G er orðið öruggt. Mér er sagt að þetta sé viðskiptaleg ákvörðun að slökkva og mér finnst það bæði skrýtin ráðstöfun og ákvörðun vegna þess að fyrir okkur á landsbyggðinni er alveg ofboðslega mikið öryggismál að vera með farnetssamband. Það er miklu meiri nálægð hérna á höfuðborgarsvæðinu, þetta er ekki sama hætta hér og úti á landi. Mig langar því að spyrja þingmanninn, og vona að ég hafi ekki gert það áður, hvernig þetta sé í kringum hann á hans svæði og hvort honum finnist það ekki í rauninni óboðlegt að fólk þurfi að bíða, eins og staðan er núna, jafnvel í nokkur ár eftir að kerfið verði jafngott og það var áður.