samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Jú, þetta hefur verið svolítið áhugamál, þetta atriði. Ég var ekki búinn að eiga þetta samtal við hv. þingmann um þessi mál en fyrir tveimur, þremur árum eða jafnvel fimm, þetta líður nú hratt, vorum við með svona 50–60 punkta sem voru sérstaklega tilteknir varðandi GSM-sambandið. Það var búið að vera mikið átak í að vinna í þessum punktum og verður alltaf dýrari og dýrari hver einstakur sendir við þær aðstæður að verið er að fækka þeim. Þegar maður keyrir um Norðausturkjördæmi þekkir maður punktana uppi á Háreksstaðaleið, uppi á fjöllunum og þegar maður fer inn á Jökuldalinn að koma niður af Háreksstaðaleiðinni, þegar maður er á austurleið og síðan aftur norður. Það eru bara þekktir staðir. Við erum orðin vön því að gemsinn okkar sé okkar helsta öryggistæki í daglegu lífi þannig að hann er gríðarlega mikilvægur. Svo vitum við líka að þegar verið er að setja inn 4G og 5G, í 5G þarf ljósleiðara inn á sendistaðina og þeir drífa styttra hver og einn þannig að það þarf að verja þéttriðnara net af sendum til að ná því. Ég hef haft töluverðar áhyggjur, og verið að reyna að eiga samskipti innan fjölskyldunnar þar sem ég er tengdur aðilum sem þekkja ágætlega til þessarar starfsemi, að það dragi svolítið úr öryggisstigi sem almenningur upplifir á ferðalögum um landið þegar þetta mikla öryggistæki er ekki lengur í sambandi. Ég er viss um að í Norðvesturkjördæmi eigi svipað við, þar er víða fjalllent og annað í dölum og fjörðum þar sem er oft erfitt að koma á góðu sambandi út um allt með þéttriðnu kerfi.