samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína yfirferð. Mig langar að ræða það sem þingmaðurinn hefur oft komið inn á hér í þessum ræðustól sem eru flugvellirnir á landsbyggðinni. Það var eitt af því sem kom aftur og aftur fram í umsögnum. Ef hv. þingmaður hefur séð þá breytingartillögu sem var lögð fram í áliti meiri hlutans þá er gert ráð fyrir að það sé hægt að fara í ákveðnar framkvæmdir, m.a. á Akureyri, og verði hægt að færa fjármagn inn í innviðafélagið.
Mig langar aðeins að hugsa stærra með þingmanninum því að við erum einhvern veginn alltaf í einhverjum bútasaumi og þetta er endalaus barátta heimamanna fyrir einhverju sem hljómar eins og ekkert, einhver aðflugsljós og einhver svona grundvallarkerfi, þegar maður horfir á nútímainnviði sem þurfa að vera í lagi ef landið allt á að rísa. Mér er svo oft hugsað til þessa í samhengi við brýrnar sem voru byggðar í kringum 1970 þegar verið var að brúa öræfin. Við áttum engan pening. Samt fórum við í það að brúa öræfin af því að við höfðum þá framtíðarsýn að við þyrftum að flytja fisk að austan og þetta yrðu innviðir sem myndu þjóna landinu öllu.
Mig langar til að heyra frá hv. þingmanni, sem ég veit að situr líka í fjárlaganefnd eða hefur a.m.k. reynslu þaðan: Erum við hreinlega með nægilega skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn? Vantar okkur framtíðarsýn? Hvernig eiga þessir flugvellir nákvæmlega að líta út eftir 10–20 ár? Erum við að fjárfesta markvisst í takt við það eða vitum við ekki nákvæmlega hvert við erum að stefna?