157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:17]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir andsvarið. Ég ætlaði nú varla að falla í þann pytt að fara að tala enn einu sinni um flugvelli á landsbyggðinni en dæmið með aðflugsljósin á Akureyrarflugvelli, og þess vegna hef ég komið inn með þessa breytingartillögu við samgönguáætlun um að varaflugvallagjaldið sem er tekið í dag og var byrjað að taka 1. nóvember 2023 og er rukkað inn fari í uppbyggingu á þeirri starfsemi sem lögin gera ráð fyrir um varaflugvallagjald og þar með, eins og aðflugsljósin á Akureyri, framkvæmdirnar á Egilsstöðum, flýta þeim framkvæmdum og nýta fjármunina. Það hefur komið fram hér í umræðunni að svarið frá hæstv. ráðherra málaflokksins var eiginlega: Fjárlög ráða. Það var nú svo einfalt. Svona getum við ekki hugsað þetta. Þarna er búið að koma með sjálfbært kerfi, vilji þingsins kominn fram en síðan kemur þessi ríkisstjórn sem fer núna með framkvæmdavaldið og segir: Heyrðu, við ætlum ekki að hafa þetta svona. Lögin voru samþykkt fyrir þremur árum í þessum þingsal þannig að það er slæmt.

Brýrnar. Þetta er ótrúleg saga að kynna sér. Við þekkjum það eins og í Norðausturkjördæmi brýrnar yfir Jökulsá á Fjöllum eru frá 1950 sirka, Skjálfandafljótið við Ófeigsstaði, frá 1935 er brúin þar sem má bara keyra sjö manna bíl yfir í dag, yfir Skjálfandafljótið, þannig að við erum með þetta út um allt land og það er gríðarlegt átak sem þarf að fara í í þessu.

Aðeins með innviðafélagið því það er svo tengt samgönguáætluninni. Ég er sammála því sem kom fram hjá hv. þm. Ingvari Þóroddssyni áðan, að ég held að það sé mjög mikilvægt að þingið í heild sinni taki á því máli og geri það sem best úr garði. Ég er ekki viss um að við séum alveg á réttri leið í málinu og í nefndaráliti meiri hluta miðað við þær upplýsingar sem við erum að fá í dag um málið. Ég held að við þurfum, eins og hjá okkur í fjárlaganefnd, að efla töluvert mikið umræðuna um það stóra og mikla mál.