157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:19]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð sem er um leið brýning til þingheims og ríkisstjórnar varðandi það að um leið og svigrúm gefst, og vonandi mun meira en er verið að horfa til með þessum rúmu 6 milljörðum, sé verið að setja þá í þessar lykilframkvæmdir sem flugvellir eru. Aftur að sögunni. Ég hugsa svo oft til þess þegar það voru bara flugvellir út um allt land, það var flogið á Kirkjubæjarklaustur og svo víðar. Stundum finnst manni eins og sagan sé einhvern veginn að taka skref aftur á bak þegar við eigum að vera að taka stærri skref fram á við.

En mig langar að koma aftur að því sem hv. þingmaður endaði á, sem er innviðafélagið, af því að ég held að allir þingmenn vilji sjá hraðari framkvæmdir. Við viljum og vitum að það skiptir máli að fá meira fjármagn inn og við sjáum þessi tækifæri ef rétt er haldið á málum. En vegna þess að þetta er svo samhangandi við samgönguáætlun þá langar mig að spyrja hv. þingmann sem hefur reynsluna úr fjárlaganefnd og innviðafélagið á einmitt að tilheyra fjármálaráðuneytinu, hvort það hefði verið heppilegra að vera með frumvarpið um innviðafélagið fyrst þannig að sá skýrleiki lægi algerlega fyrir núna þegar við ræðum um samgönguáætlun.