157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:21]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægur punktur og góður sem hv. þingmaður kemur inn á varðandi samhengi innviðafélagsins og samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar og fjárlaga hvers árs. Auðvitað átti innviðafélagið að vera löngu tilbúið áður en við fórum í umræðu um samgönguáætlun. Fullfjármögnuð samgönguáætlun er búin að vera eitt stærsta loforð þessarar ríkisstjórnar frá stofnun, að samgöngumál og allt sé fullfjármagnað. Það byggist allt á innviðafélagi sem við höfum ekkert fengið neina umræðu um á einu og hálfu ári eftir að þetta var allt fallega boðað. Ég held að það séu allir sammála því og tek undir með hv. þingmanni að það er gríðarlega mikilvægt að ná góðri niðurstöðu og ég held að almennt séu þingmenn spenntir fyrir því. En auðvitað er þetta allt of seint komið. Við erum að ræða samgönguáætlunina og næsta mál á eftir samgönguáætlun sem á að taka inn í þingsal er innviðafélagið þannig að við erum komin núna í heilmikla umræðu um innviðafélagið, sem er næsta mál á dagskrá, vegna þess að þessi tvö mál eru svo samhangandi. Samgönguáætlunin byggist á innviðafélaginu og þeim árangri í löggjöf og fjármögnun sem getur mögulega komið í gegnum innviðafélagið. Þess vegna er það gríðarlega stórt og mikilvægt mál.

Ég verð að segja að umfjöllunin í fjárlaganefnd, maður áttar sig betur og betur á því eftir því sem vikurnar hafa liðið og sérstaklega núna síðustu tvo, þrjá daga, hefði átt að vera miklu dýpri og betri. Það er kannski í dag sem maður er að átta sig á ýmsum spurningum sem maður hefði gjarnan viljað ná að spyrja umsagnaraðila að um málið. Málið er gríðarlega stórt. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að hér fari fram mjög góð efnisleg umræða um þetta mál og allir þingmenn skilji hvernig innviðafélagið á að virka. Félagið boðar framkvæmdir upp á 190 milljarða í lagafrumvarpinu sjálfu þegar við erum að tala um Ölfusá, Sundabraut og Fljótagöng. Þetta gæti verið enn þá stærra mál og verður það væntanlega ef þetta gengur allt eftir. En til þess að það gangi eftir þarf að vanda vel til verka og þingheimur þarf að skilja þetta alveg út í ystu æsar. Þess vegna hef ég tekið undir með hv. þm. Ingvari Þóroddssyni að þetta þarf að vera í mjög góðri samvinnu allra þingmanna, akkúrat þetta mál, svo allir skilji það.