157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:34]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að þakka hv. þingmanni fyrir þessa yfirferð og mig langar til að staldra sérstaklega við Árneshrepp. Þó að þingmaðurinn hafi nefnt að það hafi verið meginefni fyrri ræðu þá finnst mér það vera svo gott dæmi um að samgöngur eru raunverulegt öryggismál. Það er ekki spurning um hvort þú komist hraðar niður Ártúnsbrekkuna, þetta er bara spurning um raunverulegt öryggi á vegum. Það sem er erfitt í þeirri baráttu að tryggja betri samgöngur er fámenni. Það er kannski svolítið eins og er víða á landsbyggðinni, þó að þetta sé auðvitað mjög fámennt svæði. Þegar það eru svo fáir þá verður baráttan fyrir því að fá mikið fjármagn fyrir þær úrbætur sem þarf að gera alltaf svo mikil brekka þótt við vitum að það að hafa góðar samgöngur sé forsenda fyrir því að fleiri flytji á svæðið.

Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að við séum að gera nóg fyrir þessi jaðarsvæði sem hafa oft verið út undan, a.m.k. að einhverju leyti, í gegnum tíðina.