157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:36]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir andsvarið. Hún spyr sérstaklega um Árneshrepp sem er í Norðvesturkjördæmi og það er bara hárrétt að Árneshreppur — og þetta á við um fleiri sveitarfélög, það eru sveitarfélög í Skagafirði, ég meina, það er alltaf verið að svíkja einhver loforð víða, ekki bara í Skagafirði — en Árneshreppur virðist hafa setið á hakanum ansi lengi. Í minni fyrri ræðu í dag nefndi ég þetta einmitt sérstaklega vegna þess að ég geri ekki ráð fyrir að ég hafi ein fengið erindi frá Árneshreppi. Ég geri ráð fyrir að fleiri þingmenn hafi fengið slíkt erindi en það snertir mig djúpt að heyra af fólki sem er í rauninni búið að gefast upp. Svo er verið að reyna að missa ekki móðinn, en mér finnst við alls ekki vera að gera nóg. Ég veit hins vegar að fjármunir eru af skornum skammti og þá spyr maður sig líka: Getum við forgangsraðað öðruvísi? Vegna þess að ég sé dæmið þannig, ef ég tala meira um Árneshrepp, að ef vegasamgöngur verða ekki lagaðar í Árneshreppi þá verður bara enn erfiðara að búa þar. Það verður mjög erfitt að stunda atvinnustarfsemi, reka hótel og taka á móti ferðamönnum sem eru í taugaáfalli við að keyra vegina. Það verður að finna fjármuni til þess að laga þetta, við erum alls ekki að gera nóg og ég bara vona að það verði fundnir fjármunir til að kippa þessu í liðinn.