samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar bara til að kristalla það fyrir þeim sem þekkja staðinn minna að Árneshreppur er einn af þessum gullfallegu stöðum með ótrúlega sögu eins og þegar maður skoðar sögu Finnbogastaðaskóla, þegar maður horfir á Djúpuvík og iðnaðinn sem var til staðar þegar það var meiri sjávarútvegur, útgerð eða síldarvinnsla, ef ég man rétt, og annað sem var þarna á sínum tíma. Þetta er borðleggjandi dæmi um að innviðirnir eru einmitt grunnurinn að því að svæðið rísi á ný, þannig að mig langar til að taka undir mikilvægi þessa og líka til að beina því til okkar þingmanna að passa okkur á því, af því að fjölmennustu svæðin eru oft kannski þau sem eru háværust í umræðunni, að líta yfir landið og gefa því sérstaklega gaum þar sem eru lægri raddir, færri aðilar en engu að síður alveg ótrúlega mikilvægar og mikilvæg svæði sem eiga sóknartækifæri víða.
mig langar í mínu síðara andsvari að beina sjónum að hinu margumtalaða farneti sem hv. þingmaður hefur fjallað mikið um og þekkir betur en ég. Mig langar til að kanna hvort hv. þingmaður geti útskýrt hvers vegna markaðsforsendurnar máttu ráða þegar öryggissjónarmið eru svona mikilvæg eins og á við í kjördæmi þingmannsins, hvers vegna almannavarnalöggjöf eða önnur löggjöf hafi ekki gripið þarna inn í og hvort það þurfi hreinlega að skerpa á einhverju slíku til að tryggja öryggi í þessu samhengi og að slíkt endurtaki sig ekki.