samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Höllu Hrund Logadóttur fyrir síðara andsvar. Ég gleymdi miðanum sem ég skrifaði á en hvað um það. Varðandi Árneshrepp þá get ég ekki ítrekað nægilega oft hvað það er mikilvægt að þessu verði kippt í liðinn. Ég er sjálf frá svæði þar sem vegasamgöngur eru ekki góðar, en vegasamgöngur í Árneshreppi eru hræðilegar, þannig að það er óbúandi við þetta og það verður að finna fjármuni til að laga þetta. Eins og ég sagði í ræðu minni hér fyrr í dag þá er ekki verið að biðja um malbikun, það er ekki verið að biðja um bundið slitlag, það er verið að biðja um að malarvegir verði lagaðir þannig að það sé ekki hættuástand. Það er það sem verið er að biðja um, að það sé hægt að keyra vegina án þess að sprengja dekk og lenda jafnvel í einhverjum alvarlegum óhöppum. Ég hef heyrt fregnir af því að fólk sé bara hreinlega í taugaáfalli að keyra þennan veg þannig að hér verður að gera betur.
Varðandi farnetið. Ég er búin að vera með það svolítið á heilanum, það er alveg rétt. Ég get bara haldið áfram að tala um Vestfirði og þetta svæði. Fyrst varðandi þá viðskiptalegu ákvörðun sem virðist hafa verið tekin, að klippa á 2G eða 3G án þess að 4G og 5G séu komin í gagnið, þá hef ég spurt innviðaráðherra ítrekað hverju þetta sæti og einu svörin sem ég fæ eru þau að markmiðið sé að þetta verði komið í lag á kjörtímabilinu. Fyrir mér er það óboðlegt fyrir fólk sem býr við þetta óöryggi að ná ekki sambandi. Ef ég tek sérstaklega Vestfirði fyrir, það er ekki langt síðan ég keyrði um þá, þá er þar mjög víða ekkert samband.