157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:43]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Forseti. Ég tek undir það sem sagt er hér um Árneshrepp, Eyrarhálsinn og allt sem þar er. Sú byggð á í verulega miklum erfiðleikum vegna lélegra samgangna, þess vegna er flugið t.d. mikilvægt þar, aðgengi sjúkraflugs að Gjögurflugvelli. Sérstakur staður. Ég hef hugsað það lengi, frá því að ég var ungur maður, að það eru tveir staðir á Íslandi sem maður vill passa upp á að viðhalda hér til lengri tíma, þ.e. Grímsey og Árneshreppurinn. (Gripið fram í.) Það er mikilvægt. Það er rétt með viðhaldið á vegunum í Dölunum og á Snæfellsnesi sem komst í fréttirnar. Á síðasta kjörtímabili var fjármagni bætt mikið við til að reyna að eiga við það. Það er nú þannig að fyrir bara sjö, átta árum var um 5 milljörðum varið í viðhald á vegum landsins. Á síðasta kjörtímabili var bætt í og það var komið upp í 12–13 milljarða og enn er verið að bæta í þannig að nú er verið að tala um, þegar líður á þetta kjörtímabil, að þetta verði um 20 milljarðar á ári. Áherslan er þar. Það er svo sem bara mjög gott vegna þess að það hefur lengi mátt setja meira í viðhald og það er mikilvægt.

En mig langar rétt í lokin að koma inn á þetta samhengi sem við höfum rætt mikið í dag, hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir líka, sem er þetta samspil innviðafélagsins, samgönguáætlunar, fjármálaáætlunar og heildardæmisins. Hefði ekki verið eðlilegt að þetta mál hefði verið klárað hér í þinginu fyrir tveim, þrem mánuðum áður en samgönguáætlun er tekin til umræðu, til að byggja á? Öll umræða hér byggist raunverulega á því, samgönguáætlun er svolítið byggð á innviðafélaginu. Erum við ekki með svolítið skrýtna tímalínu í þinginu á þessum tímapunkti, að vera með þetta uppsett með þessum hætti, (Forseti hringir.) að við séum að strögla við innviðafélag í miðri samgönguáætlunarumræðu?