157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég heyrði ekki alveg spurninguna vegna þess að það var verið að hvísla í eyrað á mér, einhver var að hvísla í eyrað á mér. En ég held þó að hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson hafi verið að ræða innviðafélagið (NTF: Innviðafélag í samhengi við samgönguáætlun.) Innviðafélagið í samhengi við samgönguáætlun, já, ég heyrði þetta þó að það væri verið að hvísla í eyrað á mér. Ég er þeirrar skoðunar að auðvitað hefði það verið eðlilegra, ég meina, við erum í þessari stöðu í dag, við erum að ræða samgönguáætlun, innviðafélagið er að koma á dagskrá, mér skilst að það sé næsta mál á dagskrá. Auðvitað hefði verið eðlilegra að frumvarp um innviðafélagið hefði komið hér inn á undan samgönguáætlun vegna þess að þetta tvennt er beintengt. Þó svo að það sé ekki hægt að vísa nokkrum sköpuðum hlut úr samgönguáætlun til innviðafélagsins — sem ég held reyndar að hæstv. innviðaráðherra hafi verið að vonast til á sínum tíma að hann gæti gert, en það mun ekki vera hægt. Það er mjög skakkt að við séum að tala um samgönguáætlun og við vitum ekki enn þá hvernig innviðafélagið verður sett upp þannig að við vitum ekkert, við erum að ræða þessa áætlun og ég sé ekki fyrir mér að það sé hægt að samþykkja hana vitandi ekkert hvernig innviðafélagið mun líta út. Það er bara mín skoðun. Jú, auðvitað hefði verið miklu betra að fá frumvarpið um innviðafélag á borðið fyrr, miklu fyrr, þannig að við hefðum fast land undir fótum þegar við ræðum samgönguáætlun. Við höfum það ekki, við vitum ekkert. Það veit það í rauninni enginn vegna þess að það er ekki búið að stofna félagið, það veit enginn hvað verður hægt að setja inn í innviðafélagið.