157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:48]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að þetta sé svolítið það sem er að koma út úr þessari umræðu, að innviðafélagið er af þeirri stærðargráðu að það er eitt af stóru málunum. Þetta mál, og sú löggjöf sem er þar á bak við, er hugsað raunverulega til lengri tíma til að takast á við stórar framkvæmdir á Íslandi. Þess vegna er svolítið skrýtið að við skulum ekki vera komin dýpra og lengra og maður fer að hugsa: Af hverju var ekki meiri og dýpri umfjöllun t.d. í fjárlaganefnd? Það getur vel verið að við þurfum að ræða þar betur verklagið í kringum þetta mál, mér sýnist að jafnvel umhverfis- og samgöngunefnd hafi farið dýpra að einhverju leyti inn í málið og fengið jafnvel betri útskýringar á ýmsu heldur en við sem erum með frumvarpið sjálft. Þetta er skrýtið samhengi líka, þessir 6,3 milljarðar með því að koma Kjalarnesi inn í innviðafélagið, þar með eigi að losa um fullt af öðrum verkefnum í samgönguáætlun. Við erum að ræða samgönguáætlun og það er ekki búið að klára innviðafélagið og það eru einhverjar stjörnumerkingar. Þetta er ekki eðlileg tímalína eða eðlilegt ferli. Maður myndi a.m.k. ekki gera þetta í heimilisbókhaldinu með einhverri svona aðferðafræði. Mér finnst þetta eiginlega það alvarlegasta í allri þessari umræðu okkar, hvernig þetta hefur þróast, hvernig þessi tímalína hefur komið fram og síðan erum við að fara í fjármálaáætlun bara í beinu framhaldi af innviðafélaginu. Þetta er samgönguáætlun, innviðafélag, fjármálaáætlun bara á nokkrum dögum hér í þinginu, gríðarlegar upphæðir sem þarfnast mikillar umræðu. Þeim sem hér stendur finnst þetta mjög sérstakt í öllu þessu verklagi.