157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:50]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir hans seinna andsvar. Hann heldur áfram að ræða innviðafélagið, það var enginn að hvísla í eyrað á mér núna þannig að ég heyrði alveg hvað hann sagði. Ég er alveg sammála. Þetta er eitt af stóru málunum. Við erum að ræða samgönguáætlun í dag og ég tek undir með hv. þingmanni að auðvitað hefði verið miklu betra að fá innviðafélagið fyrst til umræðu í þinginu vegna þess að við vitum ekkert. Þetta tvennt er í raun og veru alveg samhangandi og það að vera að ræða samgönguáætlun án þess að vita hvernig innviðafélagið verður sett upp er eiginlega varla hægt. En þetta er staðan sem við erum í og einhvern veginn verðum við að komast út úr henni. Hvernig við gerum það á eftir að koma í ljós.

Varðandi þessa 6,3 milljarða sem gætu hliðrast til ef Kjalarnesið fer inn í þetta innviðafélag, sem við aftur vitum ekki, þá er búið að stilla upp ákveðnum verkefnum. Ef af þessu verður er búið að stilla upp ákveðnum verkefnum sem munu fara í framkvæmd, geri ég ráð fyrir, það kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans. Mér finnst það í raun og veru ágæt tillaga og ég fagna sérstaklega að þar er búið að setja inn t.d. frumkönnun varðandi nýjan Baldur, það er vel. En hins vegar varðandi innviðafélagið þá er þetta sérstök uppröðun hvernig við ræðum hlutina. Við hefðum átt að ræða innviðafélagið fyrst, jafnvel fjármálaáætlun fyrst, svo innviðafélagið og svo samgönguáætlun. Þetta er allt í öfugri röð.

Áður en ég fer héðan úr pontu vil ég bara ítreka það að það er gríðarlega mikilvægt að það takist vel til með uppsetningu þessa innviðafélags (Forseti hringir.) og að það nái utan um þau gríðarlega miklu verkefni sem eru fyrir höndum.