157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[20:53]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030 í síðari umræðu. Þetta er mál sem varðar sannarlega allflesta landsmenn, bæði til sjávar og sveita. Mig langar í upphafi að þakka félögum mínum í umhverfis- og samgöngunefnd fyrir mikla og góða vinnu í nefndinni og ákaflega gott samstarf í þessu máli.

Það er rétt að vekja athygli á því að þetta mál er gríðarlega umfangsmikið og hefur sannarlega tekið mikið af okkar tíma en samgöngur eru jú eins og við vitum ekki bara vegir og brýr og hafnir og flugvellir. Þetta er lífæð samfélagsins og býr auðvitað til það sem er hér á okkar landi, þessar litlu byggðir sem eru um allt land og þessa stóru kaupstaði sem hér eru. Ég vil segja að ef ekki væri fyrir samgöngur væri örðugt fyrir okkur að sækja vinnu á milli vinnusóknarsvæða, þær gera okkur það kleift. Ég nefni bara dæmi eins og fyrir mig sem er búsettur á Akranesi að eiga t.d. kost á því að sækja vinnu í Reykjavík. Ástæðan fyrir því er auðvitað sú að það eru góðar samgöngur á milli Akraness og Reykjavíkur og ég nefni þar sérstaklega Hvalfjarðargöng sem eru auðvitað dæmi um vel heppnað samgöngumannvirki. Einnig má auðvitað færa rök fyrir því að við hefðum sennilega ekki sameinað jafn mörg sveitarfélög og við höfum gert á undanförnum árum og áratugum ef ekki væri fyrir bættar samgöngur. Þetta gerir okkur auk þess kleift að sækja skóla og heilbrigðisþjónustu og auðvitað bara hitta okkur nákomna, svo maður taki nú fáein dæmi. Samgöngur eru á margan hátt forsenda atvinnusköpunar og hafa gríðarleg áhrif á byggðaþróun og góðar samgöngur eru svo sannarlega hluti af aukinni samkeppnishæfni Íslands svo því sé haldið til haga.

Virðulegur forseti. Það er einmitt af þeirri ástæðu sem það skiptir mjög miklu máli fyrir okkur hér að Alþingi takist vel upp í umfjöllun um samgönguáætlun og vonandi afgreiðslu hennar. Góð samgönguáætlun á að veita skýra sýn til framtíðar og tryggja að val á framkvæmdum og forgangsröðun þeirra framkvæmda fylgi markmiðum samgönguáætlunar hverju sinni. Fyrri samgönguáætlanir hafa ekki náð fram að ganga undanfarin ár og sú samgönguáætlun sem síðast var samþykkt var í júní 2020. Það ætti að vera okkur sérstök hvatning til þess að gera atlögu að því að klára samgönguáætlun á þessu þingi. Mig langar að bera þetta saman t.d. við að fjalla hér um rammaáætlun sem hefur í rauninni glímt við það að daga uppi í þinginu, ég ætla að leyfa mér að segja árum saman, ég segi kannski ekki áratugum, en hefur verið alveg ótrúlegan tíma hér í þinginu með tilheyrandi vandræðum sem því fylgja.

Virðulegi forseti. Í nefndinni bárust okkur yfir 140 umsagnir auk minnisblaða frá innviðaráðuneytinu og undirstofnunum þess. Það var eftirtektarvert að meðal umsagnaraðila var, ætla ég að leyfa mér að segja, góður samhljómur um að það þurfi að fara í stórt átak í viðhaldi og uppbyggingu innviða um allt land.

Virðulegur forseti. Ég ætla bara að segja það sem Sjálfstæðismaður að ég lít á það sem eina af frumskyldum ríkisins að byggja upp og viðhalda grunninnviðum landsins. Öflugt samgöngukerfi er forsenda búsetu um allt land og grunnur að uppbyggingu öflugs atvinnulífs en líka jafnræðis á milli landsvæða. Þegar staðan er skoðuð þá er ljóst að við höfum safnað upp þó nokkurri innviðaskuld og kannski ekki síst í vegakerfinu sem er jú ein stærsta eign ríkisins en það verður að segjast eins og er að því miður hefur viðhald þess ekki verið sem skyldi um árabil. Afleiðingarnar eru þær að það verður hreinlega ekki dregið lengur að gera verulegar úrbætur ef kostnaður á ekki að stórvaxa og falla á komandi kynslóðir.

Það er ekki ábyrg stefna til lengri tíma að leyfa verðmætum innviðum að grotna niður. Það er alls ekki sparnaður að fresta viðhaldi of lengi. Það er einfaldlega ávísun á hærri reikning síðar og það er reikningur sem verður sendur á komandi kynslóðir. Af þeirri ástæðu vil ég fagna sérstaklega þeirri áherslu í samgönguáætlun núna að það er lögð áhersla á aukið viðhald. Það kemur m.a. fram að framlög til viðhalds hækki úr um 12–13 milljörðum kr. undanfarin ár í 17,5 milljarða á þessu ári og síðan 20 milljarða kr. árlega á tímabilinu 2027–2030. Þetta er að mínu mati góð forgangsröðun og mikilvæg og henni ber að fagna. Þá er rétt að árétta að þegar við höfum svo náð í skottið á okkur er mikilvægt að þá verði ekki gefinn slakur taumur í frekari uppbyggingu og viðhaldi.

Virðulegur forseti. Ein af sterkustu hliðum þessarar áætlunar að mínu mati er sú að hún nær til alls landsins og þó að það hafi oft verið togstreita á milli landshluta um fjármuni þá er okkar hlutverk hér og við verðum að axla þá ábyrgð að reyna að útdeila fé með skynsamlegum hætti. Ég ætla að leyfa mér í því sambandi að nefna að við þurfum líka að gæta þess að það sé ekki of þunnt smurt. Við verðum, þó að það sé verið að fara í t.d. kostnaðarsöm mannvirki yfir einhvern tíma í ákveðnum landshluta, að geta unað því að sá landshluti fái örlítið meira en aðrir landshlutar, svo dæmi séu tekin. Vil ég þar sérstaklega nefna kannski vinnu við jarðgöng sem eru jú mjög kostnaðarsöm.

Ég ætla líka að fagna því að mér finnst umræðan hér um þessa samgönguáætlun ekki hafa litast af því sem stundum er, að það er togstreita á milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Heilt yfir er auðvitað gríðarlega mikilvægt að það sé hugað að bæði höfuðborginni og landsbyggð við útdeilingu fjármuna í þessu sambandi. Mikið til verða verðmætin auðvitað til úti á landi og það er líka mikilvægt að höfuðborgarsvæðið standi sterkt hvað varðar samgöngur. Hér er jú öll okkar þriðja stigs þjónusta, hér er hluti af menningarlífinu okkar og öll stjórnsýsla meira og minna þannig að það er mikilvægt að það séu góðar samgöngur til höfuðborgarinnar. Ég get ekki látið hjá líða að nefna, maður notar nú vegina mikið hér í borginni, að það er eiginlega átakanlegt hvað umferðarteppur og -tafir hafa aukist á undangengnum árum. Ég vona svo sannarlega að nýr meiri hluti í Reykjavík taki til hendinni í því að bæta hér samgönguumhverfið.

Ég nefndi að atvinnulíf á landsbyggðinni skapaði verðmæti fyrir allt landið. Hér má auðvitað nefna ferðaþjónustuna, sjávarútveginn, landbúnaðinn og fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki sem eru beinlínis háð öruggum og góðum samgöngum. Af þeirri ástæðu vil ég t.d. nefna að það er mikilvægt að áfram verði unnið að því að auka öryggi á þjóðvegum landsins. Það er mikilvægt að við fækkum einbreiðum brúm, bætum stofnvegi og tengivegi og aukum öryggi vegfarenda. Það er auðvitað lykilþáttur í hverri samgönguáætlun. Við eigum töluvert verk óunnið. Það eru hundruð einbreiðra brúa í landinu og það bíða mikilvægar framkvæmdir víða um land.

Ég vil kannski nefna að í mínu kjördæmi, Norðvesturkjördæmi, hefur okkur lánast að mínu mati, sérstaklega vil ég nefna þar Vesturland, að taka okkur saman, sveitarfélögin, um að forgangsraða verkefnum þannig að við höfum búið til samgönguáætlun fyrir Vesturland. Það hefur verið að mínu mati vel heppnuð tilraun og hún er til þess fallin að sveitarfélög séu þá ekki að karpa um forgangsröðun verkefna og gefi þar af leiðandi ekki á sér höggstað með það að menn hafi ekki náð einhvers konar samkomulagi heldur sé það þannig að sveitarfélögin komi sér saman um forgangsröðun. Það einfaldar auðvitað líf Vegagerðarinnar um margt. Einnig, eins og ég nefndi hér fyrr í ræðu minni og hef nefnt í andsvörum hér áður, er mikilvægt að við séum ekki að smyrja of þunnt. Það er auðvitað mikilvægt að við horfum til hagkvæmni í framkvæmdum og leggjum þá kannski meira í það að taka verkefni fyrir af krafti og klára þau þannig að við séum ekki að skilja eftir vegbúta eða með óhagkvæmum hætti færa stórvirk tæki á milli vinnusvæða til þess eins að láta þau síðan mæta eftir tvö, þrjú ár eða eitthvað álíka, það er auðvitað fráleit niðurstaða.

Ég held að það sé líka mikilvægt að við hér á Alþingi sendum skýr skilaboð um að jafnræði í samgöngum skipti máli og það sé raunverulegt markmið hjá okkur alþingismönnum að gæta að því að það sé jafnræði í samgöngum.

Ég vil líka nefna mikilvægi innanlandsflugs. Fyrir okkur sem búum á þessari eyju með dreifða byggð er mikilvægt að innanlandsflug sé gott og það sé öryggi í þeim samgöngumáta og að það sé hluti af grunnkerfi samgangna. Þar vil ég ítreka mikilvægi Reykjavíkurflugvallar sem ég tel að skipti gríðarlega miklu máli í því sambandi að við getum sótt þjónustu og stjórnsýsluna. Það gerum við ekki nema vera með tryggingu fyrir rekstraröryggi flugvallarins. Ég tók eftir því í samgönguáætlun núna að það er mikið litið til þess að það verði leitað að öðrum varaflugvelli hér á suðvestursvæðinu. Ég ætla ekki að leggjast sérstaklega á móti því en vil samt benda á að það skiptir gríðarlegu máli að við höldum vel utan um Reykjavíkurflugvöll þannig að við séum ekki að ana að neinu í þeim efnum og tryggjum hér öruggar samgöngur um alla vega þann tíma sem við höfum ekki fundið annan völl sem er betri eða hentugri fyrir þessa þjónustu.

Fyrir okkur sem búum í Norðvesturkjördæmi langar mig einnig að ræða farsímasamband og fjarskipti. Maður verður vel var við það sem þingmaður við að ferðast á milli landshluta, og vil ég þar nefna sérstaklega Vestfirði, að það er eiginlega alveg ótrúlegt að á mjög stórum köflum er hreinlega ekki hægt að ná símasambandi. Það skiptir jafnvel klukkutímum sem maður er utan sambands við umheiminn.

Eitt af því sem ég staldra aðeins við í núverandi samgönguáætlun er þessi nýja nálgun á hvernig við ætlum að fjármagna stór verkefni. Það er auðvitað vitað og hefur verið vitað lengi að við höfum þurft á stórframkvæmdum að halda sem augljóslega hefur ekki verið sett nægjanlegt fjármagn í í samgönguáætlun til að standa undir. Því styð ég áform um að finna nýjar leiðir í þeim efnum. Þar hefur ýmislegt verið nefnt og við höfum hér fyrir framan okkur nýja leið í þeim efnum. Það hefur verið ákveðið að stofna innviðafélag sem er ætlað að standa straum af stórum framkvæmdum og þá væntanlega stórum framkvæmdum í kringum höfuðborgarsvæðið, af því að það stendur til að innheimta veggjöld til að greiða upp þessi mannvirki og því er eðlilegt að það gerist hér á suðvesturhorninu þar sem þéttbýlið er mest.

Mig langar að nefna í þeim efnum að enn er nokkrum spurningum ósvarað um þetta innviðafélag og mikilvægt að það verði betur skýrt þegar umræða verður um það mál. Kannski má eiginlega segja að það hefði verið betra að ræða samgönguáætlun eftir að við hefðum verið búin að afgreiða innviðafélagið. Það hefði verið kostur því að mér hefur sýnst t.d. hér í dag að margar af ræðunum hafi beinst að því að ákveðnum spurningum hefur ekki verið svarað. Ég stóð sjálfur í þeirri meiningu að þegar innviðafélagið hefur tekið að sér að byggja, segjum bara t.d. ný Hvalfjarðargöng, þá yrði það með þeim hætti að það myndi standa straum af fjármögnun mannvirkisins, fengi tækifæri til að innheimta veggjöld og síðan yrði mannvirkinu skilað til Vegagerðarinnar þegar því væri lokið. Það er reyndar ekki rétt, eins og ég skil málið núna alla vega.

Ég styð þá áætlun að við séum að nýta nýja kosti og horfum til annarra leiða í því að fjármagna stór samgöngumannvirki sem augljóslega er þörf á. Ég ætla að nefna sérstaklega höfuðborgarsvæðið í því og langar mig í því sambandi að nefna Sundabraut sem er einhver mikilvægasta framkvæmd sem blasir við okkur Íslendingum nú um stundir og hefur reyndar gert um áratugi. Auðvitað vona ég að við náum að byrja sem fyrst á því verkefni. Það er þjóðhagslega hagkvæmt verkefni og mjög mikilvægt fyrir þá sem sækja þjónustu hingað í höfuðborgina, t.d. af Vesturlandi. Það má nefna fleiri atriði og fleiri slíkar framkvæmdir þótt þær séu kannski ekki alveg af sömu stærðargráðu sem t.d. innviðafélagið gæti þá tekið yfir og fengið að innheimta veggjöld af.

Varðandi innviði í Reykjavík þá ætla ég að taka undir með þeim þingmönnum sem hafa lýst því yfir að það þurfi einhvern veginn að skýra betur hlutverk Betri samgangna og líka hvort það ætti ekki að vera einhver aðkoma þingsins að því hvernig búið er um slíkt félag. Ég leyfi mér líka að nefna að það kann að vera skynsamlegt að við séum ekki með mörg félög í gangi í þessa veruna. Þarna erum við þá komin með innviðafélag og Betri samgöngur eru einhvers konar innviðafélag eins og ég skil alla vega málið og velti þá fyrir mér af hverju við hefðum ekki haft þetta bara í einu félagi. Það skýrist kannski betur í umræðunni um innviðafélagið.

Ég sé að hér skerðist tími minn og auðvitað veit maður aldrei hvort maður kemst í aðra ræðu eða ekki en þá langar mig að nefna að ég ætla að leyfa mér að skora á þingmenn að við reynum að finna niðurstöðu varðandi þessa samgönguáætlun og að við náum að afgreiða hana á þessu þingi. Ég held að það væri blessun í því að við næðum að klára þetta mál og landa þessu með góðum hætti. Það á alltaf að vera keppikefli okkar á hverjum tíma að í gildi sé samgönguáætlun sem er góður vegvísir inn í framtíðina. Þar vil ég líka nefna í ljósi þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram í dag, m.a. um forgangsröðun verkefna, að að mínu viti skiptir það miklu máli að það sé fyrirsjáanleiki í svona framkvæmdaáætlun eins og samgönguáætlun er. Þar skiptir gríðarlegu máli að við getum horft langt fram á veginn. Þetta eru dýrar og kostnaðarsamar framkvæmdir sem taka mikinn tíma í undirbúningi og það er eiginlega ekki boðlegt að það sé mikill hringlandaháttur í því. Auðvitað getum við þurft að endurskoða einstök verkefni og forgangsröðun og ráðum auðvitað ekki öllum spilum á hendi hverju sinni. Það geta komið upp alls konar atriði eins og við vitum best, hvort sem það er náttúruvá eða eitthvað annað. En ég ætla að leyfa mér að skora á þingmenn að við reynum okkar allra besta til að finna sátt í þessu máli og að við náum að landa því að við verðum með samgönguáætlun sem verður samþykkt frá þinginu.