157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:13]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér og hans áskoranir um að klára þetta mál en bendi jafnframt á að það er náttúrlega algerlega órætt eitthvað sem heitir innviðafélag, það er algerlega órætt og menn hafa mjög misjafnar skoðanir á því frumvarpi og meiningar og skilning jafnvel, þannig að ég set þann fyrirvara við að við eigum ýmislegt órætt sem er nátengt þessari áætlun. Hins vegar veit ég að hv. þm. Ólafur Adolfsson kemur úr Norðvesturkjördæmi þar sem eru gífurlega mikil verkefni og erfið á sviði samgangna. Þess vegna vil ég spyrja hv. þingmann, og læt það vera mína fyrstu spurningu til hv. þingmanns, hvort hv. þingmaður sé ánægður með afraksturinn í þessari samgönguáætlun fyrir sitt kjördæmi. Ég er fyrir Suðurkjördæmi og hef verið að lýsa því yfir að mér finnst ýmislegt vanta upp á hvað varðar vegabætur í því kjördæmi þar sem virðist eingöngu vera Ölfusárbrúin og lítið af öðru, a.m.k. ekki næstu árin, kannski einhvern tímann á næsta kjörtímabili eða hjá næstu ríkisstjórn eða jafnvel þarnæstu ríkisstjórn. Hvernig horfir þetta til í Norðvesturkjördæmi? Ég veit auðvitað að samgöngur á Vestfjörðum eru mjög erfiðar. Einhverjar vegabætur standa nú yfir en atvinnuuppbygging á Vestfjörðum er gífurlega mikil nú um stundir, mikil gróska í atvinnulífi og þetta gæti þá stórlega tafið fyrir uppbyggingu og valdið náttúrlega gífurlegum aukakostnaði fyrir atvinnurekstur á svæðinu. Önnur svæði eins og kannski Vatnsnesvegur, er hv. þingmaður ánægður með framgang mála þar t.d.? Á Snæfellsnesi eru slæmir vegir. Ég vildi spyrja hv. þingmann hvort hann sé ánægður og sáttur við afraksturinn fyrir sitt kjördæmi.