samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir andsvarið og get svarað því nokkuð snaggaralega að ég hefði svo gjarnan viljað sjá frekari framlög í Norðvesturkjördæmi. Við höfum reyndar búið við það í Norðvesturkjördæmi að þar hafa Vestfirðir um nokkuð langa hríð setið eftir og þar var ástand innviða ekki gott og í rauninni slæmt og samgöngur mjög erfiðar. Það hefur hægt og rólega verið unnið að því að breyta því og það hefur verið lyft grettistaki í samgöngum á Vestfjörðum þó að auðvitað megi gera betur. Við getum horft þar t.d. á þau jarðgöng sem þar hafa verið boruð og einnig Dynjandisheiði svo dæmi sé tekið. Þar er líka verið að vinna að þverun fjarða sem mun stytta leiðina til Reykjavíkur töluvert. Allt eru þetta þakkarverðar framkvæmdir og ánægjulegt að það skyldi hafa verið farið í þær.
Ég ætla líka að segja að við sem höfum búið á flatlendinu og verið undir sama hatti hjá Vegagerðinni eða í útdeilingum á samgönguáætlun höfum haft ákveðinn skilning og þolinmæði hvað þetta varðar. En það hefur hins vegar þýtt að það hefur verið mjög lítið viðhald t.d. á vegum á Vesturlandi og þar eru æðimargir vegspottar sem eru nánast ófærir hluta úr árinu. Ég vil nefna að fyrir rúmu ári síðan var sent út neyðarkall af hálfu nokkurra sveitarfélaga vegna ástands vega og það er auðvitað eitthvað sem við horfum til að mögulega verði að einhverju leyti bætt í auknu viðhaldi og við teljum okkur á Vesturlandi eiga nokkuð ríkan skerf í þeim hluta sem þar er boðaður sem aukning.