157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:17]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans svar. Samgöngur eru mikilvægasta hagsmunamál íbúa úti á landi, sérstaklega á stöðum eins og Vestfjörðum og einangruðum stöðum. Þar eru samgöngumál númer eitt í því sem fólk vill bæta í sínu nærumhverfi. Það má telja upp alls konar aðra hluti sem gætu þá komið síðar þannig að ég var vongóður þegar ég heyrði í ríkisstjórninni þegar til hennar var stofnað að hún ætlaði að setja boranir í gang og fara að bora jarðgöng. Nú er komið á annað ár, vel á annað ár að fyllast í haust síðan þessi ríkisstjórn tók við völdum og það er ekkert komið í gang. Það eru ekki einu sinni áætlanir og fjöllin á Vestfjörðum þar sem þarf að gera göng í gegn til að bæta samgöngur og til að koma í veg fyrir akstur uppi á heiðum að vetri til eru fleiri en tölu verður á komið þar sem þörf er á jarðgöngum. En það er ekkert að gerast. Ég trúi ekki að hv. þingmaður sé ánægður með þessa samgönguáætlun þar sem ekkert hreyfist fyrr en hugsanlega með tilkomu nýrrar ríkisstjórnar eftir tvö eða þrjú ár.