157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:20]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans erindi sem var flutt af hógværð eins og hans er von og vísa, fullmikilli hógværð reyndar að mati þess sem hér stendur en (Gripið fram í.) þannig er nú einfaldlega karakter hv. þingmanns enda þingeyskar ættir líklega ekki í hans fyrsta eða öðrum lið. Það sem stóð upp úr í ræðu þingmannsins, sem var áferðarfalleg, var, ef ég hef tekið rétt eftir, frú forseti, yfirlýsing hv. þingmanns um að hann fagnaði því að ekki væri um togstreitu milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar að ræða núna. Nú reyndi ég að fá fram höfuðskilaboð, hneigingu eða að hann hristi hausinn, en hvorugt kom þannig að ég túlka það sem svo að ég hafi skilið þetta rétt.

Mig langar að bera undir hv. þingmann í ljósi þessara ummæla samhengið við innviðafélagið sem við erum búin að ræða svolítið hérna því það er ekki hægt að skilja þetta í sundur. Við hefðum í raun og veru átt að snúa þessu á hinn veginn, ekki satt, hv. þingmaður? Við hefðum átt að ræða innviðafélagið fyrst, skilgreina hlutverk þess, hvaða verkefni lægju á borði þess, til hvers við ætlumst af því og síðan kæmi samgönguáætlunin í kjölfarið. En þessu er öllu snúið á hvolf hér eins og stundum áður.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það sé hans skilningur á þessari samgönguáætlun og boðuðu innviðafélagi, að það að innviðafélagið taki fyrst og fremst að sér arðsamar framkvæmdir sé vísbending um að það sé ekki togstreita milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis.