157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:22]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er á þeim stað að sú togstreita sem hefur verið mest varðandi landsbyggðina og höfuðborgarsvæðið hafi kannski snúið að flugvellinum fyrst og fremst. Ég hef ekki heyrt marga kvarta undan því að bættar samgöngur í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á landsbyggðina. Eðli málsins samkvæmt er það auðvitað þannig að það fyrirkomulag sem innviðafélaginu er ætlað að lúta, þ.e. að það verði innheimt veggjöld af þeim samgöngumannvirkjum sem rísa hér undir nafni innviðafélagsins — það er eðli málsins samkvæmt eini staðurinn þar sem hægt er að gera það með beinum framlögum notanda á höfuðborgarsvæðinu og í kringum það þar sem flest fólkið er og mesta umferðin. Ég vil líka nefna í því sambandi að hingað sækir líka fjöldinn allur af ferðamönnum, eins og úti á landi, og það eru auðvitað ákveðnir staðir úti á landi sem gætu mögulega fallið undir það að innviðafélagið gæti tekið að sér þar mannvirkjagerð, útilokar það ekki t.d. í kringum vinsæla ferðamannastaði. Það er eðli máls samkvæmt ljóst að þar væri hægt að innheimta slík gjöld og standa undir byggingunni.

Það sem ég hef hins vegar kannski mestar áhyggjur af er að t.d. aðilar eins og á Akranesi sem þurfa að keyra til borgarinnar til að sækja vinnu eða skóla eða annað og fara í gegnum kannski margar gjaldstöðvar og síðan væri verið að nota andlag þeirra upphæða sem þar safnast til að fara í mannvirkjagerð einhvers staðar annars staðar en akkúrat þar sem verið er að nota það. Það gæti auðvitað valdið togstreitu en ég held að svona heilt yfir séu menn á þeim stað að ef þetta er til hægðarauka fyrir einstaklinginn þá er hann bara glaður þó að hann þurfi að borga örlítið.