157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:25]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir svarið. Ég held reyndar að hann hafi hugsanlega óvart svarað spurningunni. Það er vissulega til staðar togstreita því innviðafélagið mun fyrst og fremst sinna arðbærum framkvæmdum. Tökum sem dæmi, hv. þingmaður, tvö verkefni bara á þessu svæði hér, annars vegar ný Hvalfjarðargöng, rakið dæmi fyrir fjárfesta, og hins vegar Sundabraut, líka gott dæmi en þó ekki nálægt því eins gott. Þó er Sundabraut umtalsvert betra dæmi fyrir innviðafélag heldur en líklega 99,9% framkvæmda á landsbyggðinni. Það er fljótt á litið ekki nema kannski svæðið milli Þelamerkur og Akureyrar, tvöföldunin þar, og mögulega göng sem losa okkur við Öxnadalsheiðina sem eiga eitthvert roð í þennan samanburð en þó ekki, þannig að arðsemiskrafan af slíkum framkvæmdum mun búa til togstreitu milli þessara svæða. Ég held að það sé augljóst, (Forseti hringir.) og hv. þingmaður leiðréttir mig ef ég er að vaða í villu og svima, að verði þessar framkvæmdir (Forseti hringir.) einhvers konar hilluvara mun innviðafélagið að sjálfsögðu velja fyrst arðsömustu framkvæmdina, (Forseti hringir.) þannig að eina leiðin — fyrirgefðu, frú forseti — er þá að vera bara með eina vöru í hillunni hverju sinni.

(Forseti (EÁs): Forseti vill ítreka það að ræðutími í síðari umferð er ein mínúta.)