157. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[21:26]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að ég verði að segja hv. þingmanni að hann nær mér ekki út í þrætur um það hvort það sé togstreita við höfuðborgina. Í mínum huga er þetta algerlega augljóst. Innviðafélagið á valkosti í kringum höfuðborgarsvæðið eins og ég nefndi af því að við erum að áætla að framlög til innviðafélagsins komi frá notendum samgöngumannvirkjanna. Eðli máls samkvæmt er mesti fjöldi fólks hér. En ég vil jafnframt nefna það að ef við náum að rýma til fyrir þessu og við þurfum ekki að nota greiðslur af samgönguáætlun til að fjármagna þessa kosti í Reykjavík, sem eðli málsins samkvæmt myndu þá seinka eða hreinlega koma algjörlega í veg fyrir að t.d. göng rísi á landsbyggðinni, þá fyrst værum við mögulega að tala um einhverja togstreitu, ef valið stæði um það hvar göngin ættu að rísa og hvar þau gerðu mest gagn. Þá höfum við augljóslega minni fjármunum úr að spila og niðurstaðan af því er að allir tapa að mínu mati.